Ummæli Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um tónlistarmanninn Bubba Morthens vöktu talsverða athygli um helgina. Nú hefur rithöfundurinn Hallgrímur Helgason blandað sér í málið með því að birta ákveðinn samanburð á þeim Brynjari og Bubba.
Bubbi sendi ákall til þingmanna á dögunum vegna Samherjamálsins svokallaða. Kallaði hann eftir því að þeir myndu bregðast við árásum fyrirtækisins á Helga Seljan.
Brynjar svaraði Bubba með pistli um helgina þar sem hann skaut á Bubba: „Að lokum vil ég segja við poppstjörnur í eldri kantinum, sem hafa áhyggjur af þögn þingmanna um Samherja, að það þarf öflug fyrirtæki, sem geta gert mikil verðmæti úr auðlindum okkar, til að greiða ykkur um hálfa milljón á mánuði í heiðursskyni til æviloka.“
Í færslu á Facebook-síðu sinni birtir Hallgrímur eftirfarandi samanburð:
BUBBI vs. BRYNJAR 2013 - 2021.
BUBBI: 67 lög, 4 plötur, 3 ljóðabækur, 256 tónleikar, 79 laxar, 1 söngleikur, 15 aðsendar greinar.
BRYNJAR: þingmaður, 0 lög, 0 frumvörp, 0 fyrirspurnir, 5 ræður, 23 aðsendar greinar, 342 komur í Bítið á Bylgjunni.
Laun frá ríki:
BUBBI: 38,4 M
BRYNJAR: 115,2 M