Tónlistarkonan og höfundurinn Hallfríður Ólafsdóttir er látin

Hallfríður Ólafsdóttir, tónlistakona og höfundur bókanna um Maxímús Músíkús, lést á líknadeild Landspítala síðastliðið föstudagskvöld en Vísir greinir frá þessu.

Hallfríður var 56 ára þegar hún lést en hún hafði verið að glíma við krabbamein.

Hallfríður kom víða við á ferli sínum en saga hennar er rakin í umfjöllun Vísis um málið. Þar kemur fram að hún væri fædd og uppalinn í Kópavogi en hún lauk Einleikara- og Blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum áður en hún fór í framhaldsnám bæði í London og París.

Hún hafði verið leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúmlega 20 ár en á síðasti árum hafi hún sinnt hljómsveitarstjórn í auknum mæli, til að mynda á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Þá var hún einnig listræn stjórnandi og höfundur fræðsluverkefnisins Maxímús Músíkús sem var unnin í samvinnu við teiknarann og víóluleikarann Þórarin Má Baldursson, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ríkisútvarpið og Forlagið en frá því að fyrsta bókin kom út árið 2008 hefur verkefnið unnið til fjölda verðlauna.

Sjálf hefur Hallfríður einnig fengið ýmsar viðurkenningar fyrir sín störf en hún hlaut meðal annars Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2014 fyrir framlag sitt í þágu tónlistarfræðslu.

Hallfríður lætur eftir sig eiginmann og tvö börn.