Hall­dóra ó­sátt með heil­brigðis­ráð­herra: „Langar mest að fara gráta“

Hall­dóra Mogen­sen, þing­maður Pírata, sem barist hefur fyrir af­glæpa­væðingu fíkni­efna á Al­þingi átti varla orð til að lýsa von­brigðum sínum yfir á­kvörðun Willum Þórs heil­brigðis­ráð­herra að setja frum­varp sitt um af­glæpa­væðingu neyslu­skammta á ís.

„Heil­brigðis­ráð­herra er búin að fella niður frum­varp sitt um af­glæpa­væðingu neyslu­skammta. Ég kann ekki að setja í orð von­brigði mín en langar mest að fara að gráta,“ skrifar Hall­dóra á Twitter í dag.

Þing­menn fengu upp­færða þing­mála­skrá í hendurnar í dag en þar kemur fram hvaða mál ráð­herrar ætla leggja fram á þessu þingi.

Í sam­tali við Vísi segir Hall­dóra að hún óttist að verið sé að drepa málið en það hefur áður „sofnað“ í nefnd.

Hún segist hafa bundið vonir um að Willum Þór myndi klára málið fyrir al­vöru að þessu sinni en hún gerir sig fylli­lega greina fyrir því hvar and­staðan við málið liggur.

Sam­kvæmt skoðana­könnunum eru 60 prósent þjóðarinnar hlyntir því að gera breytingar á nú­verandi stefnu sem Hall­dóra segir vera stór­skað­lega.