„Þær efnahagsþrengingar sem heimsfaraldurinn hefur valdið kalla á nýja sýn á velferðarkerfið, nýja nálgun sem grípur alla í samfélaginu án skilyrða eða skerðinga,“ segir Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra birti hugleiðingar sínar um skilyrðislausa grunnframfærslu, eða svokölluð borgaralaun, á tímum COVID á Facebook-síðu sinni í gær. Halldóra hefur verið mikill talsmaður borgaralauna eins og samflokksmenn hennar innan þingflokks Pírata.
Gengur hugmyndin út á að tryggja öllum borgurum landsins skilyrðislausa grunnframfærslu, en með henni megi styrkja efnahagsleg og félagsleg réttindi fólks og stuðla að jöfnum tækifærum, eins og segir í þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram um borgaralaun.
Í færslu sinni segir hún að í kjölfar COVID gefist okkur tækifæri til að endurhugsa grundvöll og uppbyggingu þeirra kerfa sem ætlað er að tryggja mikilvæga efnahagslega- og félagslega sátt.
„Sátt sem skiptir öllu máli til að auka samheldni á tímum þar sem sundrung virðist stigmagnast. Að tryggja efnahagslegt öryggi allra á þessum óvissutímum er fjárfesting. Með því að vernda lífsafkomu fólks, verndum við hagkerfið og hvetjum til aukinnar nýsköpunar og sveigjanleika sem er nauðsynlegur til að byggja upp vinnumarkað framtíðarinnar.
Við verðum að hætta að horfa aftur á bak til þess sem var og byrja að undirbúa það sem verður.“