Halldór um Róbert: Forstjóri í „kýlingaleik“ við samstarfsmenn í viðskiptaferð erlendis

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen og einn ríkasti maður Íslands, hefur verið borinn þungum sökum af gamla samstarfélaga sínum 18 ára.

Sjálfskipaður uppljóstrari, Halldór Kristmannsson sem er fyrrverandi upplýsingafulltrúi og framkvæmdastjóri lyfjarisanna Alvogen og Alvotech, sakar Róbert meðal annars um líkamsárás, slæma stjórnunarhætti, og að hafa hótað fyrrverandi samstarfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra lífláti.

Stjórnir lyfjafyrirtækjanna lýstur yfir stuðningi við Róbert í síðustu viku og sögðu ekkert athugunarvert hafa komið í ljós eftir óháða athugun. Halldór segir það hvítþvott undir áhrifum Róberts og krefst þess að stjórnirnar rannsaki ásakanirnar og að Róbert víki sem forstjóri.

Halldór segist vita til þess að Róbert hafi sent fyrrverandi samstarfsfélögum sínum morðhótanir árið 2016. Eins segist Halldór sjálfur hafa orðið fyrir líkamsárás af hálfu Róberts og séð Róbert ráðast á aðra á viðburði fyrirtækisins erlendis þegar hann var undir áhrifum áfengis.

„Þegar ég síðar nefndi þetta við Róbert sagðist hann hafa verið að grínast og við hefðum verið í kýlingaleik. Ég var beinlínis kýldur kaldur í andlitið án fyrirvara í vitna viðurvist. Mér var augljóslega ekki skemmt, og hef ekki orðið var við það almennt séð að forstjórar fari í kýlingaleiki við samstarfsmenn,“ segir Halldór í tilkynningu til fjölmiðla.