Halldóri Auðar Svanssyni líst ekkert á fyrirætlanir Símans um að selja dótturfyrirtæki sitt Mílu til franskra fjárfesta. Hann deilir færslu um þetta á Twitter og þar rífast þau Friðjón Friðjónssyni hjá Sjálfstæðisflokki og Helga Vala Helgadóttur hjá Samfylkingunni um málið.
Eins og fram hefur komið hefur þjóðaröryggisráð fundað vegna sölunnar. þá greindi Fréttablaðið frá því í kvöld að Ragnar Önundarson hefði sent ráðinu erindi vegna málsins.
„Já endilega selja bara grunninnviði úr landi í miðri kreppu. Allt mjög eðlilegt hér,“ skrifar gáttaður Halldór Auðar og deilir frétt um málið.
Friðjón Friðjónsson, Sjálfstæðismaður, svarar Halldóri og segist ekki viss um að sjóðurinn ætli sér að taka ljósleiðarana upp og flytja úr landi. „Þeir munu líklega vera hér enn,“ skrifar Friðjón og drýpur kaldhæðnin af orðum hans og hefur hann greinilega litlar áhyggjur af málinu.
Þá svarar Helga Vala: „æ Friðjón, þú veist nú betur en þetta.“
Friðjón segir um tvískinnung ESB sinna að ræða. „Það er einmitt stórkostlegur tvískinningur í ESB sinnum að ætla að mótmæla því að evrópskt fyrirtæki kaupi íslenskt. Hvað heldur þetta fólk að ESB sé? Bara gott veður, bagettur og ódýr bjór?“
Helga Vala spyr hvaða rugl þetta sé í Friðjóni. „Við erum að tala hér um grunninnviði, þjóðaröryggi, ekki brauð.“
Rosa sniðugt að djóka bara með þetta
Ljóst er að Halldóri Auðar Svanssyni finnst lítið til ummæla Friðjóns koma. Hann vísar jafnframt í umræðu úr Silfri gærdagsins á RÚV þar sem meint stjórntæki VG versus Samfylkingar var rætt.
„Já rosa sniðugt að djóka bara með þetta. Þykir náttúrulega ekki alvöru umræðuefni meðal Sjálfstæðismanna og hinna stjórntæku,“ skrifar Halldór.
Friðjón svarar og segir fjármagn fjármagn, sama hvaðan það komi.
„eignin verðmætið er grafið í jörðu á Íslandi. Við þurfum að hætta þessum heimóttarskap, vissu þið að kanadískur lífeyrsissjóður kennara á stærsta hlutinn í Kastrup?“ skrifar Friðjón og fer mikinn.
„fjármagn er fjármagn, skiptir í alvöru öllu málið að eignarhald fyrirtækisins sem á vírana í jörðinni sé íslenskt? Halda menn að vondir útlendingar, aðallega Frakkar muni taka af okkur internetið? Jesús hvað þetta er heimóttarlegt“