„Við viljum semja við Eflingu. Mér finnst samningsviljinn ekki vera til staðar,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Eins og greint hefur verið frá hefur stjórn SA samþykkt að leggja það til við aðildarfyrirtæki sín að setja allsherjarverkbann á Eflingu. Verði tillagan samþykkt mega þeir sem starfa eftir kjarasamningum Eflingar og SA ekki sækja vinnu og ekki þiggja laun meðan á verkbanni stendur.
Fulltrúar Eflingar og Samtaka atvinnulífsins sátu á fundi alla helgina í kjölfar þess að verkföllum var frestað á föstudag. Viðræður sigldu hins vegar í strand í gær og sagði Halldór að kröfur Eflingar væru einfaldlega óaðgengilegar. Hann sagði að Sólveig Anna væri ekki sama manneskjan á fundum og í fjölmiðlum.
„Þegar ég hlusta á Sólveigu Önnu í fjölmiðlum er það allt önnur manneskja en birtist þeim sem hafa átt í samskiptum við hana. Orð eins og samningsvilji eru reglulega orðaðir í fjölmiðlum en sá samningsvilji er ekki að framkallast á fundum með Samtökum atvinnulífsins,“ sagði Halldór Benjamín og bætti við:
„Það mynstur sem er að teiknast upp á íslenskum vinnumarkaði er þetta: Efling hefur undir núverandi forystu gert fimm stóra kjarasamninga, alltaf farið í verkfall. Það er tími til þess að brjóta þetta upp. Það væri óábyrgt að fallast á auknar kröfur Eflingar sem myndi leiða til þess að við þyrftum að taka upp alla kjarasamninga landsins með einum eða öðrum hætti og það er staða sem ekki er hægt að búa við.“