Hall­dór og Sól­veig á fund Ástráðs – Verk­banni frestað!

Ást­ráður Haralds­­son, settur ríkis­sátta­­semjari, hefur boðað samninga­­nefndir Eflingar og Sam­­taka at­vinnu­lífsins á fund sinn í Karp­húsinu í kvöld og búið er að fresta upp­hafi boðaðs ó­tíma­bundins verk­banns um rúma fjóra sólar­hringa að hans beiðni.

Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Á fundinum ætlar ríkis­sátta­semjari að ráðgast um fram­lagningu nýrrar miðlunar­til­lögu.

Bæði Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­­maður Eflingar og Hall­­dór Benja­mín Þor­bergs­­son, fram­­kvæmdar­­stjóri SA hafa sagt að þau væru til­­búin að fresta öllum að­­gerðum ef ríkis­sátta­­semjari myndi boða þau til nýs fundar.

Sól­veig hefur þá sagt að Efling myndi ekki standa í vegi fyrir at­­kvæða­­greiðslu um nýja miðlunar­til­lögu ef ríkis­sátta­­semjari myndi leggja hana fram.

Í frétta­til­kynningu frá Sam­tökum at­vinnu­lífsins er greint frá frestun verk­bannsins og hefst það nú að öllu ó­breyttu mánu­daginn 6. mars klukkan fjögur.