Hall­dór Jóns­son látinn: „Stór­brotnasti maður sem ég hef hitt“

Karen Elísa­bet Hall­dórs­dóttir, fyrr­verandi bæjar­full­trúi í Kópa­vogi, greinir frá því á Face­book í dag að Hall­dór Jóns­son, verk­fræðingur og einn þekktasti Mogga-bloggari landsins hafi látist í morgun.

„Elsku­legur pabbi lést í morgun eftir um viku sjúkra­hús­dvöl og lang­varandi veikindi.

Síðasta vika var okkur öllum erfið og ekki síst honum þegar hann sá í hvað stefndi,“ skrifar Karen á Face­book.

„Hann kaus líknandi með­ferð sem lauk í morgun. Við höfum setið hjá honum, haldið í hönd hans og þakkað honum hans sam­veru í þessu lífi. Hann er stór­brotnasti maður sem ég hef hitt og gaf aldrei eftir eina einustu mínútu. Það hefur verið krefjandi að vera dóttir hans en einnig mikil for­réttindi. Hvíldu í friði elsku pabbi, sjáumst síðar,“ bætir hún við og deilir mynd af föður sínum.