Halldór Gunnarsson, fyrrverandi sóknarprestur í Holti og einn stofnenda Flokks Fólksins, fer hörðum orðum um Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, í tengslum við baráttu hennar gegn blóðmerahaldi. Hann segir í Morgunblaðinu í dag:
„Að hlusta á endalausa einhliða umfjöllun um blóðmerahald með hneykslun í fjölmiðlum, og nú síðast á Alþingi að beiðni Ingu Sæland með hennar framsögu og órökstuddu fullyrðingum og síðan álíka útleggingu sumra þingmanna um þessa hliðarbúgrein, var mér svo þungbært að hlusta á, að ég get ekki þagað lengur.“
Halldór segir að um sé að ræða búgrein sem hafi verið stunduð í 40 ár án ríkisstuðnings og undir ströngu eftirliti.
„Sem bóndi tók ég þátt í þessari búgrein frá upphafi og gat þannig nýtt Holtsmýrarnar fyrir hrossin og einnig fyrir féð sem nýtti gróðurvöxtinn í kjölfarið. Fallþungi folaldanna jókst, eftir að blóðtakan hófst, hver svo sem ástæðan hefur verið. Aldrei í tæp 40 ár varð hryssu meint af blóðtökunni á nokkurn hátt. Þær vöndust aðferðinni, en oft kom upp að beita þurfti aðhaldi og písk við erfiðar aðstæður, sérstaklega við hryssur í fyrstu skiptin við blóðtöku.“
Halldór biður þingmenn og þá sem hafa hneykslast mest á málinu að horfa aftur á myndbandið:
„Ekkert af þessu er dýraníð og ætti því ekki að hneyksla, nema ef til vill þá, sem aldrei hafa komið að bústörfum í sveit. Mynd af dýralækni við að taka blóðið ætti heldur ekki að vera til hneykslunar.
Hins vegar er skeytt við myndbandið mynd af höltu hrossi úti í haga sem er alveg ótengt blóðtökunni og kemur þessu máli raunar ekkert við.“
Það sem Halldór segir að hann hafi séð hafi verið bóndi að gera sitt besta til að ljúka verkefni og reyna að valda dýrunum sem minnstri vanlíðan.