Halldór Baldursson, skopmyndateiknari Fréttablaðsins, hittir naglann býsna oft á höfuðið. Óhætt er að segja að hann geri það einnig með skopmynd sinni í dag.
Eins og kunnugt tóku hertar samkomutakmarkanir gildi á miðnætti. Það þýðir að í stað 50 manna samkomubanns áður er nú komið í gildi 20 manna samkomubann.
Þá var tveggja metra reglan tekin upp aftur í stað eins metra reglunnar og gerir Halldór góðlátlegt grín að því eins og myndin hér að neðan sýnir.