Halldór Benjamín: Það eru of margir alltof bjartsýnir

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins dregur ekki upp bjarta mynd af íslensku atvinnulífi í samtali sínu við Sigmund Erni í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld – og óttast langvarandi kreppu og efnahagssamdrátt hér á landi.

Hann segir umræðuna værukæra; of margir séu alltof bjartsýnir um að viðspyrnan verði sterk og komi fljótt, jafnvel strax á næstu vikum – og hann er afar efins um að hagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá því fyrr í vikunni gangi eftir um 6,0 prósenta hagvöxt á Íslandi á næsta ári, eftir 7,2 prósenta samdrátt í ár. Hann sjái í rauninni engin teikn á lofti um að svo sterk viðspyrna geti orðið, þótt hann voni það auðvitað innilega, en ekki einasta sé eftirspurn á öllum sviðum í lágmarki – og verði það áfram sakir óvissunnar, ferðatakmarkana og varanlegra breytinga á venjum fólks, heldur bitni ástandið á öllum meginstoðum atvinnulífsins; sjávarútvegur og áliðnaður sé þar engin undantekning.

Hann segir einsýnt að stjórnendur atvinnulífs og verkalýðsforystan verði, ásamt stjórnvöldum, að taka samtalið um nýjar samskiptaleiðir, annað sé óhugsandi á tímum þegar 50 þúsund manns séu að hluta eða alveg atvinnulaus; kaupmáttur muni rýrna og lífskjör versna – og þess vegna gangi einfaldlega ekki að krefjast sömu eða hærri launa, sem og skattaálaga, sem en nú þegar séu að sliga atvinnulífið. Nú verði bara allir að taka á sig tekjuskerðingu með einum eða öðrum hætti.

En auðvitað geti almenningur líka hjálpað og mildað kreppuna með því að taka höndum saman og auka eftirspurnina, þótt ekki sé nema með kaupum á einhverju smávægilegu umfram nauðsynjar í hverri viku. Margt smátt geti skipt hér sköpum, það verji störf í bráð og lengd – og á endanum sé mikilvægast að hafa í huga að vinna er velferð.