Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, eyddi hluta gærdagsins í að setja saman IKEA-innréttingu.
Spurði hann að því tilefni á Twitter-síðu sinni:
„Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað? Er að setja saman IKEA og hlusta á Jussi Björling.“
Halldór Benjamín hefur haft í mörg horn að líta undanfarin misseri sem helsti talsmaður atvinnurekenda og þá var hann orðaður við framboð til borgarstjórnar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hafa ýmsir gert því skóna að Halldór sé líklegur arftaki Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, skaut létt á Halldór í athugasemd við færslu hans og sagði:
„Heyrist þú vera korter frá því að skrá þig í Samfylkinguna!“
Færsla Loga sló rækilega í gegn og er hún komin með hátt í 50 „læk“ þegar þetta er skrifað.