Mikil umræða hefur verið á Twitter um ummæli í athugasemdakerfum sem fela í sér kynþáttahyggju, Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, hefur deilt slíkum ummælum þar sem talað er illa um uppruna hennar.
Mesta power move sem ég veit er að lesa svona um mig tveimur tímum áður en ég stíg upp í ræðustól Alþingis
— Lenya Rún (@Lenyarun) February 22, 2022
og hvað ætliði að gera í því? ❤️ pic.twitter.com/uhY4SWk6mG
Halldór Auðar Svansson, varaþingmaður Pírata, kannaði bakgrunn konu sem talaði illa um Lenyu og komst að því að viðkomandi var sjálfur innflytjandi í Noregi:
„Fyndið hvað allir mestu rasistarnir virðast undantekningalaust búa í útlöndum en eru samt með mjög sterkar skoðanir á hverjir eiga að fá að vera hér heima.“
Leggur hann til reglu:
„Ný regla: Íslendingar búsettir í útlöndum mega ekki tjá sig um hverjir þeim finnst að megi eða megi ekki búa hér á Íslandi,“ segir hann. „Ætti að fækka rasistainnleggjum í kommentakerfunum um svona 75%.“
Rafn Steingrímsson lagði til afmarkanir: „Getum við samt gert greinarmun á fólki sem býr erlendis og þrífst í þeim samfélögum sem það býr í og eldri borgurum sem eru bara í permanent sumarfríi á Spáni og í Flórída? Held að það myndi laga hlutföllin.“