Hall­dór Auðar um Brynjar Níels: „Flokks­trúðurinn er mættur“

„Flokkstrúðurinn er mættur til þess að snúa þessu öllu bara upp í grín.“

Þetta skrifar Hall­dór Auðar Svans­son, fyrr­verandi borgar­full­trúi Pírata, í Face­book færslu þar sem hann deilir færslu Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæðis­flokksins þar sem hann skrifar um stóra Bjarna­málið.

Í Face­book færslunni gerir Brynjar lítið úr máli Bjarna. Bjarni var eins og al­þjóð veit í fjöl­mennu teiti á Þor­lák­messu­kvöldi, í trássi við til­mæli sótt­varnar­yfir­valda. Þar segist Brynjar hafa kíkt út í göngu í dag.

„Á göngunni mætti ég tals­verðum fjölda fólks og passaði vel upp á tveggja metra regluna ef ein­hver sam­fylkingar­maður eða pírati skyldi vera á gægjum bak við runna. Þurfti nokkrum sinnum að stökkva út í skafla þegar menn komu að ó­vörum. Þegar í búðina kom óskaði ég eftir talningu áður en ég steig inn fyrir þröskuldinn. Var mjög stressaður og tauga­veiklaður í búðinni eftir því sem gestum fjölgaði og fannst ég sjá Helgu Völu og Þór­hildi Sunnu við hvern rekka. Á endanum hljóp ég heim án þess að kaupa nokkuð.“

Ljóst er að Hall­dóri finnst ekki mikið til koma vegna skrifanna.

„Þess ber auð­vitað að geta að það voru ekki Helga Vala eða Þór­hildur Sunna sem höfðu af­skipti af Bjarna Bene­dikts­syni heldur lög­reglan. Brynjar skautar eðli­lega alveg fram­hjá þeim þætti málsins enda erfitt að snúa því yfir í grín. Sjálf­stæðis­menn bara hafa engan á­huga á að taka sótt­varnir al­var­lega fyrir sitt leyti en þeim finnst samt bara salla­fínt að taka þátt í að beita al­menning þeim.“

Flokkstrúðurinn er mættur til þess að snúa þessu öllu bara upp í grín. Þess ber auðvitað að geta að það voru ekki Helga...

Posted by Halldór Auðar Svansson on Saturday, 26 December 2020