Upplausn virðist ríkja á ritstjórn 24.is ef marka má uppsagnarbréf sem birtist á miðlinum í nafni tveggja blaðamanna miðilsins.
Búið er að taka færsluna út en þar lýsa þeir Tómas Valgeirsson og Arnór Steinn Ívarsson stopulum launagreiðslum og samskiptaleysi við yfirstjórn miðilsins, sem er í ritstjórn Kristjóns Kormáks Guðjónssonar.
Ekki uppfærður reglulega
„Eins og glöggir fjölmiðlalesendur taka eflaust eftir hefur vefur 24 ekki verið uppfærður reglulega síðustu vikur og lítið afl farið í umsjón hans. Það sem eftirstandandi starfsmenn (á plani) vilja koma á framfæri, bæði til lesenda og til sinna nánustu, er útskýring á stöðu mála en ofar öllu beiðni um skilning,“ skrifa þeir Tómas og Arnór.
„Með tímanum fór að skjóta skökku við í rekstrinum. Starfsmönnum var lofað samningum og launum sem varð ekki af. Laun fóru að koma seint og sjaldnast í heilu lagi. Starfsmenn voru fullvissaðir um að fyrirtækið stæði á traustum fótum. Þeir fætur voru ekki svo traustir, eða svo virðist: starfsmenn fá ekki að vita,“ skrifa þeir.
„Samskipti á milli þessara deilda, starfsmanna á plani og rekstrar, var mjög ábótavant og hefur valdið mikilli óvissu og fjárhagslegu óöryggi. Þetta hefur verið að ágerast síðan í lok nóvember. Þá strax voru teikn á lofti um að fjármagnið væri ekki eins tryggt og lofað var. Jólatíðin einkenndist af samskiptaleysi og áfram yfir á nýja árið.“
Kveðjufærslan í heild sinni:
Framtíð 24.is – Á meðan kötturinn sefur…
…skrifa mýsnar yfirlýsingu.
Eins og glöggir fjölmiðlalesendur taka eflaust eftir hefur vefur 24 ekki verið uppfærður reglulega síðustu vikur og lítið afl farið í umsjón hans. Það sem eftirstandandi starfsmenn (á plani) vilja koma á framfæri, bæði til lesenda og til sinna nánustu, er útskýring á stöðu mála en ofar öllu beiðni um skilning.
Fréttamiðillinn 24.is fór af stað með látum og krafti síðastliðinn októbermánuð, en stefna miðilsins var að flytja fjölbreyttar og helst til jákvæðar fréttir af mannlífi landsins og öllu þar tilheyrandi. Þess má geta að fyrsta umfjöllun miðilsins var úttekt á hinu svonefnda Karlmennskuspjalli (hvíl í friði).
Samskiptaleysi og tjáningarmáttur seðla
Með tímanum fór að skjóta skökku við í rekstrinum. Starfsmönnum var lofað samningum og launum sem varð ekki af. Laun fóru að koma seint og sjaldnast í heilu lagi. Starfsmenn voru fullvissaðir um að fyrirtækið stæði á traustum fótum. Þeir fætur voru ekki svo traustir, eða svo virðist: starfsmenn fá ekki að vita.
Samskipti á milli þessara deilda, starfsmanna á plani og rekstrar, var mjög ábótavant og hefur valdið mikilli óvissu og fjárhagslegu óöryggi. Þetta hefur verið að ágerast síðan í lok nóvember. Þá strax voru teikn á lofti um að fjármagnið væri ekki eins tryggt og lofað var. Jólatíðin einkenndist af samskiptaleysi og áfram yfir á nýja árið.
Snemma í ferlinu fór af stað hörð undirbúningsvinna að hlaðvarpsstúdíói þar sem til stóð að bjóða upp á pakkaða og þrælskemmtilega dagskrá. Markmiðið var að strá nýju kryddi yfir sívaxandi hlaðvarpsmenningu Íslands og flytja formið á næsta þrep. Þetta gekk ekki eftir sökum villandi upplýsinga á meðal stjórnar sem varðar umfang fjármagns, áreiðanleika og öryggi þess. Skemmst er að segja frá því að Stúdíó 24 (þá að öllum líkindum undir nýju nafni) hefur kosið að starfa sjálfstætt og leitar núna annarra fjárstyrktaraðila.
Þetta stúdíó stendur meðal annars að Tölvuleikjaspjallinu og gaf nýverið út örseríuna Sandkorn: Stúdering á Svörtu söndum við miklar vinsældir, en þetta er aðeins brot af broti af þeim áætlunum sem eru í pípum aðstandenda.
Alls hafa ýmsir hverjir blaðamenn komið og farið inn um dyr höfuðstöðva 24, en sökum ofannefndra ástæðna varðandi óvissu tekjumódels og fjármagns, hafa leiðir skilist þar.
24.is fór af stað með hugmyndafræðina að vopni, en eins og glöggir átta sig einnig á, þá greiðir hugmyndafræðin ekki ein fyrir saltið í grautinn.
Starfsmenn á plani þakka fyrir allan lestur og stuðning.
Eigið góðan bolludag.
Kveðjur bestar,
Tommi Valgeirs og Arnór Grjót.