Halla Signý: Vefjagigt er langvinnur sjúkdómur sem ekki læknast

„Það er ánægjulegt að sjá að heilbrigðisráðuneytið hefur brugðist við þessari tillögu með ýmsum hætti,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar skrifar Halla um sjúkdóm sem verður sífellt meira áberandi. Um er að ræða vefjagigt sem einkennist af langvarandi útbreiddum stoðkerfisverkjum ásamt öðrum einkennum.

Halla bendir á að á haustþingi 2019 hafi verið samþykkt þingsályktunartillaga sem hún lagði sjálf fram.

„Með tillögunni var heilbrigðisráðherra falið að beita sér fyrir fræðslu til almennings um vefjagigt og láta fara fram endurskoðun á skipan sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu. Markmiðið með sérhæfðri endurhæfingarþjónustu er að styrkja greiningarferlið og geta boðið upp á heildræna meðferð byggða á niðurstöðum gagnreyndra rannsókna.“

Halla segir ánægjulegt að sjá að ráðuneytið hafi brugðist við þessari tillögu með ýmsum hætti. Þannig var samningur við Þraut – miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma endurnýjaður, en með endurnýjun samningsins var lögð sérstök áhersla á þrennt, þar á meðal var fræðsla til almennings og starfsfólks heilsugæslu um vefjagigt. Gert er ráð fyrir að sú vinna hefjist á þessu ári.

„Þá var einnig lögð áhersla á að stytta biðlista eftir greiningarmati þannig að hefja megi endurhæfingarmeðferð fyrr ásamt snemmtækum inngripum til að fyrirbyggja framgang sjúkdómsins og koma í veg fyrir örorku. Endurhæfingarstefna var sett á síðasta ári og í framhaldi lögð fram aðgerðaráætlun til fimm ára,“ segir Halla en í henni má meðal annars finna áherslur um að styrkja þátt endurhæfingar í grunnnámi heilbrigðisstétta.

„Þá er lögð áhersla á stofnun endurhæfingarteyma í hverju heilbrigðisumdæmi sem leggja áherslu á að beita heildrænni nálgun við endurhæfingu og fyrst um sinn þjónusta einstaklinga með þráláta verki vegna stoðkerfisvanda. Það skiptir máli að bjóða upp á heildræna meðferð við vefjagigt.“

Halla bendir á að síðasta haust hafi verið skipaður þverfaglegur starfshópur um langvinna verki, en hlutverk hans er að taka saman tölulegar upplýsingar um fjölda, aldur og kyn skjólstæðinga; meðferðir sem veittar eru, hvar og af hverjum og gera tillögur að úrbótum í þjónustu og skipulagi sem auðveldar aðgengi og ferli sjúklinga í kerfinu. Til stendur að starfshópurinn skili stöðuskýrslu í næsta mánuði sem verður innlegg í frekari vinnu við sérhæfðari endurhæfingarþjónustu vegna langvinnra verkja, þ.m.t. þjónustu vegna vefjagigtar.

„Vefjagigtargreining var talin meðvirkandi þáttur í 75% örorku hjá 14% allra kvenna sem voru á örorku. Örorka vefjagigtarsjúklinga orsakast oft af samverkandi þáttum vefjagigtar, annarra stoðkerfissjúkdóma og geðsjúkdóma. Þetta er langvinnur sjúkdómur sem ekki læknast og því fjölgar í hópi vefjagigtarsjúklinga með hækkandi aldri. Því skiptir máli að bregðast við með heildrænni meðferð sem heldur sjúklingum virkari eins lengi og hægt er.“