Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, furðar sig á því hversu greiðan aðgang Samtök fjármálafyrirtækja virðist hafa að grunnskólum.
Þá furðar hún sig á því að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra stökkvi á vagninn með þeim til að setja fram „áróður“ um að fjármálalæsi sé einhvers konar svar við vandamálum samtímans.
Þetta segir Halla í færslu á Facebook-síðu sinni og deilir auglýsingu frá Fjármálaviti sem hefur gert sig gildandi að undanförnu. Fjármálavit er í eigu Samtaka fjármálafyrirtækja eins og Halla bendir á. Er markmiðið að fjármálafræðslu verði fundinn staður í námskrá fyrir grunnskóla.
Halla er ósátt við þetta og segir að undirliggjandi sé sú mýta að fjármálavanda fólks megi rekja til þess að það hafi enginn kennt þeim að lesa vaxtatöflur bankanna.
„Staðreyndin er sú að það er tvennt sem ákvarðar velgengni í fjármálum: stétt og fjárhagsstaða foreldra. Misjöfn fjárhagsstaða foreldra er ekki komin til af því að sumir foreldrar séu svo rosalega duglegir að vinna og spara og aðrir ekki, heldur vegna ójöfnuðar og misskiptingar.“
Hún segir að fólk taki ekki heimskuleg lán því það er heimst heldur vegna þess að það hefur ekki val um annað. „Og peningakerfið (sem er heimskt) vinnur gegn þeim. Ef þú átt meiri peninga eignastu meiri peninga, ef þú átt enga peninga eignastu meiri skuldir og á margfalt verri kjörum.“
Halla segir sjálfsagt að skólar fjalli um peningamál og skuldamál en það verði að gerast í samhengi við umfjöllun um strúktúra samfélagsins. „Ekki með áróðri í boði sérhagsmunasamtaka.“