„Það er engin lagaleg skylda til að vera inn í Facebook-hóp vinnustaðarins, hvað þá að vera með kveikt á hópspjalli þar sem sífellt er verið að óska eftir fólki á vakt,“ segir Halla Eiríksdóttir, varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í áhugaverðri grein á vef félagsins.
Í grein sinni segir hún að hjúkrunarfræðingur hafi sagt við hana um daginn að þetta sumar yrði það versta til þessa.
„Flestir hjúkrunarfræðingar fá sem betur fer að fara í samfellt fjögurra vikna frí núna í sumar en gera það með jafnvel með sektarkennd því að samstarfsfólkið þarf að hlaupa hraðar á meðan, þar sem ekki hefur tekist að fylla upp í lausar stöður.“
Halla segir að í þessu ástandi sé hægt að spyrja sig hver ábyrgð vinnuveitanda gagnvart starfsfólki sínu er í þessu ástandi.
„Og hvers vegna ætla vinnuveitendur hjúkrunarfræðingum að hlaupið hraðar og hraðar? Hvers vegna endurtekur sagan sig á hverju sumri? Það læðist að manni sá grunur að heilbrigðiskerfið í heild njóti góðs af vilja hjúkrunarfræðinga til að hjálpa skjólstæðingum sínum og samstarfsfólki,“ segir hún.
Hún segir að fleiri atriði valdi áhyggjum þegar horft er inn í sumarmánuðina.
„Mikil vöntun er á faglærðu og reyndu starfsfólki getur ýtt undir óöryggi í starfi. Það og hraðinn eykur hættuna á mistökum. Að bregðast samstarfsfólki með því að standa með sjálfum sér og neita að koma á aukavaktir veldur svo meiri vanlíðan. Við erum nú komin með fyrirbærið „samviskubitaáreiti“ sem felur í sér reglulegt áreiti samstarfsmanna í gegnum síma og samfélagsmiðla til að fá hjúkrunarfræðinga á aukavakt þegar þeir eiga að vera í fríi og vilja ekki meiri vinnu.“
Halla hvetur hjúkrunarfræðinga – og vafalítið aðra sem gætu verið í svipuðum sporum – til að gæta sín.
„Þeir þurfa að hlúa betur að eigin heilsu og draga úr meðvirkni gagnvart vinnustaðnum. Þekkja leiðir til að standa með sjálfum sér og leita sér aðstoðar ef með þarf. Meðvirkni er þekkt fyrirbæri meðal umönnunaraðila og eru hjúkrunarfræðingar útsettari fyrir þeim kvilla sökum vinnu sinnar,“ segir Halla sem endar grein sína á þessum orðum:
„Það er engin lagaleg skylda til að vera inn í Facebook-hóp vinnustaðarins, hvað þá að vera með kveikt á hópspjalli þar sem sífellt er verið að óska eftir fólki á vakt. Munið að það þarf ekki að koma með neina afsökun fyrir því hvers vegna þú vilt ekki vinna umfram vinnuskyldu. Það þarf ekki að vera ferðalag, afmæli eða brúðkaup, þú mátt alveg vera heima og gera ekki neitt. Þegar upp er staðið er engum greiði gerður með því að vinna umfram eigin mörk, slíkt endar aldrei vel. Hjúkrunarfræðingar, standið með sjálfum ykkur og þekkið ykkar mörk.“
Greinin í heild sinni á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.