Forsvarsmenn Hagkaupa fylgjast með máli Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns og hvort fjarlæga þurfi markaðsefni með Gylfa úr verslunum. Þetta staðfestir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa í samtali við mbl.is.
„Við erum að fylgjast með fréttum,“ segir Sigurður í samtali við miðilinn. „En það er nokkuð ljóst að ef fréttir staðfesta það sem er í pípunum, þá munum við að sjálfsögðu skoða málið.“
Eins og fram hefur komið fullyrti umræddur miðill að Gylfi hafi verið handtekinn á föstudag, vegna gruns um meint brot gegn barni. Ekkert hefur heyrst frá Gylfa um málið.
Um er að ræða orkudrykkinn State of Energy þar sem Gylfi er í forgrunni. Sigurður hefur ekki verið í bandi við forsvarsmenn þess aðila. „Við tökum bara ákvarðanir þegar rétti tíminn er til þess og fylgjumst með málinu.“