Hafnar full­yrðingum Jónatans og segir stafafura á­genga tegund

„Það að segja frá því opin­ber­lega að rann­sóknir sýni að stafafura sé talin á­geng tegund og að hvetja til þess að hún verði notuð með var­úð er hvorki hrein­trúar­stefna né öfgar,“ segir Árni Braga­son land­græðslu­stjóri í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Þar svarar hann full­yrðingum Jónatans Garðar­sonar formanns Skóg­ræktar­fé­lags Ís­lands í á­lyktun frá aðal­fundi fé­lagsins þar sem segir að her­ferð hafi verið rekin í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum gegn skóg­rækt og ís­lensku skóg­ræktar­fólki.

Svan­dís Svavars­dóttir hefur boðað sam­einingu Skóg­ræktar og Land­græðslu og hefur það ekki alls staðar fallið í góðan jarð­veg. Í við­tali sagði Jónatan að Skóg­ræktar­fé­lagið hefði á­hyggjur af því að sam­einingin snerist um sparnað og að hætta væri á að skóg­ræktin yrði undir bæði hvað varðar fjár­magn og stefnu. Deilan snýst meðal annars um notkun stafafuru.

Sjálfur segist Árni hafa notað stafa­furu sem jóla­tré í ára­tugi og vonar að Ís­lendingar auki notkun hennar í þeim til­gangi. „Ég vona að menn beri gæfu til að skipu­leggja ræktun stafafurunnar og ræktunar­svæði þannig að slys verði ekki með sama hætti og orðið hefur með lúpínuna,“ segir hann.


Frétt Frétta­blaðsins í heild sinni.