„Úr varð algjört táraflóð og konan sagði að þetta væri besti dagur lífs síns,“ segir Hafdís Þorleifsdóttir, eigandi fataverslunarinnar Gyllta kattarins í Austurstræti.
Hafdís er í áhugaverðu spjalli í Fréttablaðinu í dag en hún er eigandi eins þekktasta kattar landsins og þótt víðar væri leitað. Högninn, Baktus, er eitt þekktasta kennileiti miðbæjarins og er hann vinsælli á Instagram en flestir Íslendingar þar sem um 10.600 fylgjast með ævintýrum hans.
En frægðin hefur ekki stigið Baktusi til höfuðs því hann lætur gott af sér leiða í góðgerðarmálum, eins og fjallað er um í Fréttablaðinu. Hafdís segir að Baktus hafi gefið mikið af sér, bæði andlega og peningalega, og rifjar hún upp að eldri maður hafi viljað gefa honum 110 þúsund krónur fyrir einu og hálfu ár.
„Mér fannst þetta skrítið þar sem hann þarf ekki á þessum pening að halda en setti peninginn þó til hliðar.“
Fram kemur að eigendur Baktusar séu í samtökunum Villikettir, en þau leitast við að aðstoða bágstaddar kisur. Peningarnir sem Baktus höfðu fengið nýttust vel þegar einn kattanna þurfti að gangast undir kostnaðarsama aðgerð. „Við borguðum þá aðgerð enda þarf Baktus ekki á peningunum að halda,“ segir Hafdís við Fréttablaðið.
Hafdís viðurkennir að henni þyki óþægilegt að taka við framlögum til Baktusar en það sem kemur sé lagt til hliðar fyrir bágstödd dýr. Borguðu þau Baktus til dæmis fyrir hund um daginn þegar pabbi hans átti ekki fyrir aðgerðinni. Hafdís rifjar svo upp skemmtilega sögu af manni sem kom í búðina um daginn. Sá hafði komið til landsins með eiginkonu sinni fyrir þremur árum þar sem þau hittu Baktus.