Hafði ítrekað brotið af sér áður en hann stakk drenginn í undirgöngunum

Maðurinn sem stakk 18 ára gamlan dreng þrisvar í undirgöngum milli Elliðarárdals og Fossvogs hefur ítrekað brotið af sér síðustu daga og vikur.

Þetta hefurFréttablaðið eftir Margeiri Sveinssyni, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur mbl eftir Margeiri að um sé að ræða fullorðinn mann.

Ungi maðurinn var á hjóli þegar árásarmaðurinn vatt sér upp að honum og reyndi að ræna af honum hjólinu. Hann dró svo fram hníf og stakk unga manninn þrisvar.

Hinn 18 ára gamli drengur var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala þar sem hann gekkst undir aðgerð, en er ekki í lífshættu að sögn Margeirs.

Frétt Fréttablaðsins um málið.