Hafa safnað tæplega tveimur milljónum fyrir Tækniminjasafnið

Hópfjármögnun Tækniminjasafns Austurlands á Karolina fund lýkur eftir þrjá daga en þegar hefur tekist að safna um 12.650 evrum, eða tæplega tveimur milljónum króna, frá því að söfnunin hófst. Markmiðið er að safna 25 þúsund evrum fyrir miðnætti á mánudag.

Að því er kemur fram á síðu söfnunarinnar er eyðileggingin sem safnið stendur frammi fyrir gríðarleg en stór hluti safnkostarins varð fyrir aurskriðu sem lenti á Seyðisfirði síðastliðinn desember og er óvíst hvort hægt sé að nota svæðið sem safnið stóð á áfram.

„Margir ómetanlegir safnmunir með mikla og merka sögu eru horfnir að eilífu auk hinna sögulegu húsa og við því er ekkert hægt að gera. En öðrum gripum hefur verið bjargað úr rústunum, í misgóðu ástandi þó,“ segir í frétt á vef Múlaþings um málið.

„Mjög tímafrek vinna er fram undan við að koma skipulagi á, hreinsa og skrá það sem við munum finna. Til þess þurfum við að geta greitt fólki laun, komið upp nýju geymsluhúsnæði og keypt þau aðföng sem til þarf til að tryggja eins góða varðveislu og hægt er.“

Upprunalega var markmiðið fyrir söfnunina tíu milljónir króna en nú hefur það verið lækkað niður í tæplega fjórar milljónir króna. Hægt er að leggja söfnuninni lið hér.