Hættu­legur leikur barna í Grafar­vogi: „Ó­trú­lega leiðin­legt að sjá svona“

„Þetta er náttúru­lega stór­hættu­legt og þess vegna setti ég þetta inn,“ segir Snjó­laug Elísa­bet Niel­sen, íbúi í Grafar­vogi, í sam­tali við Hring­braut. Snjó­laug vakti at­hygli á hættu­legum leik barna í hverfinu í Face­book-grúppu íbúa í gær­kvöldi en búið var að koma fyrir stórum hnullungum úti á götu í hverfinu.

Ekki þarf að fjöl­yrða um hættuna sem gæti hlotist af því ef bif­reið eða öðru öku­tæki væri ekið á þá. Fyrir utan slys á fólki gæti tjónið hlaupum á hundruðum þúsunda. Snjó­laug segir að sumir steinarnir hafi verið mjög þungir og ekki hlaupið að því að lyfta þeim af götunni.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Snjó­laug verður vitni að þessu en í gær­kvöldi var hún í göngu­túr við Skóla­veg þegar hún sá hóp ung­lings­drengja koma hnullungunum fyrir. Hún segir að piltarnir hafi verið á aldrinum 13 til 17 ára og einn hafi dottið þegar hann hljóp yfir móann hjá Engja­skóla.

„Fyrir utan þann sem datt, var einn í ljósum buxum en annars allir dökkklæddir,“ segir hún. Hvetur hún for­eldra til að ræða þessi mál við börn sín.

„Ó­trú­lega leiðin­legt að sjá svona - kennum börnum okkar að bera virðingu fyrir náunganum og eigum hans. Annars langar mig bara segja gleði­lega há­tíð og hafið það gott,“ segir hún í inn­leggi sínu en myndin efst í fréttinni var tekin í gær­kvöldi á meðan myndin sem birtist hér að neðan var tekin um daginn.