Hættulegur leikur barna á Selfossi: „Fari þetta í augu getur sá skaði verið varanlegur“

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, varar sterklega við því að fólk, einkum börn, fikti við að gera heimatilbúnar sprengjur. Tilkynningar um slíkt hafa borist að undanförnu og sá lögregla ástæðu til að senda út aðvörun vegna þessa.

Um er að ræða efnasprengjur sem auðveldlega er hægt að búa til með heimilisefnum. Þær eru hins vegar mjög öflugar og segir Oddur að krafturinn sé það mikill að fólk getur misst hendurnar sé það nærri.

„Þetta eru sprengjur sem verða til með því að blanda saman tilteknum efnum sem sett eru ofan í lokað ílát. Við það myndast mikill gasþrýstingur sem endar með því að flaskan springur,“ segir Oddur í samtali við Fréttablaðið.

Varar lögreglan við því að meðhöndla órofnar plastflöskur sem bera þess merki um að í þeim sé torkennileg efni. Fólk skuli ekki hreyfa við ílátunum og hafa beint samband við lögreglu í síma 112 og tilkynna verði slíkir hlutir á vegi þeirra.

Oddur segir ekki um rörsprengjur að ræða en dæmi eru um að slíkar sprengjur hafi verið búnar til á Íslandi.

„Nei þetta eru ekki slíkar sprengjur. Þær geta þó vissulega líka haft skelfilegar afleiðingar og eru dæmi um banaslys sem hafa hlotist af þeim,“ segir Oddur. Það er ekki bara krafturinn í sjálfri sprengjunni sem er hættulegur því efnið sem notað er til að búa til sprengjuna er ætandi og dreifist um allt ef sprengjan springur.

„Það slettist á það sem fyrir verður og það þýðir að það hlýst af því efnabruni. Fari þetta í augu getur sá skaði verið varanlegur,“ segir Oddur.

Oddur segir loks við Fréttablaðið að lögregla hafi upplýsingar um að börn hafi búið til sprengjurnar og biðlar hann til foreldra að ræða við börn sín.

Nánar á vef Fréttablaðsins.