Fækkað hefur um einn í Gagnamagninu, hljómsveitinni sem keppti fyrir hönd Íslands í Evrópsku Söngvakeppninni, Eurovision árin 2021 og 2020.
Fréttablaðið greinir frá þessu á vef sínum.
Hulda Kristín Kolbrúnardóttir, meðlimur Gagnamagnsins, greinir frá því á Twitter að einn meðlima Gagnabandsins hafi sagt sig úr hljómsveitinni eftir að Daða Frey og öðrum meðlimum bandsins bárust skilaboð frá meintum þolanda.„Hann játar og segir sig svo úr bandinu, við ákváðum aftur að ekki opinbera það þar sem ég hélt að við værum að halda í hennar ósk að ekki opinbera,“ segir í yfirlýsingu Huldu Kristínar á Twitter.
Þar segir hún hljómsveitina ekki hafa greint frá ásökununum fyrr þar sem hún taldi að meintur þolandi hafi ekki viljað opinbera málið.
Miklar umræður hafa skapast á um málið á samfélagsmiðlinum Twitter. Meintur þolandi rekur þar samskipti sín við hljómsveitarmeðlimi, einkum Daða Frey, en hún segist hafa sett sig í samband við hann og hljómsveitina rétt eftir Eurovision og greint frá ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi eins liðsmanns bandsins.
Í frásögn hennar er hvorki tilteknum ofbeldisverkum lýst né greint frá nafni umrædds liðsmanns en þó sögð á honum nokkur deili, meðal annars að hann hafi verið útnefndur Sunnlendingur vikunnar.
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.