Hætti að drekka kaffi: Þessum breytingum fann hún fyrir

Þeir sem hafa lagt það í vana sinn að drekka kaffi á hverjum degi vita að það getur verið erfitt að vera án þess – sér­stak­lega á morgnana eða í góðum fé­lags­skap eftir góðan mat.

Þrí­tug kona í Mel­bour­ne í Ástralíu, Olivia White, var rúm­lega tví­tug þegar hún byrjaði að drekka kaffi. Það gerðist skömmu eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn og ekki leið á löngu þar til hún varð nánast háð kaffi­drykkju. Henni leið hrein­lega illa ef hún fékk ekki kaffi. En hvað gerðist þegar Olivia á­kvað að hætta að drekka kaffi fyrir fjórum mánuðum?

Olivia sagði Mail On­line í Ástralíu sögu sína sem er nokkuð á­huga­verð, sér­stak­lega fyrir þá sem eiga erfitt með að láta kaffi­bollann frá sér. Olivia segist nú hafa áttað sig á því að gegndar­laus kaffi­drykkja hafði slæm á­hrif á and­lega heilsu hennar og segir hún að ein­kenni á borð við kvíða og svefn­leysi hafi horfið eins og dögg fyrir sólu þegar hún lagði kaffi­könnuna til hliðar. Þá segir hún að ein­beitingin sé betri nú en áður.

„Þegar ég hætti að drekka kaffi og neyta koffíns átti ég auð­veldara með að ein­beita mér,“ segir hún og bætir við að hún hafi haft betri stjórn á hugsunum sínum og átt auð­veldara með að ein­beita sér að hlutunum. Hugsanirnar hafi í raun ekki verið úti um allt.

Þeir sem drekka kaffi – sér­stak­lega síð­degis eða á kvöldin – kannast við að eiga erfiðara með að festa svefn að kvöldi eða jafn­vel sofa verr þegar loks tekst að festa svefn. Olivia segir að eftir að hún losaði sig við koffínið hafi svefninn batnað til muna. „Ég er mun fljótari að sofna, ég get farið fyrr upp í rúm og vakna þar af leiðandi fyrr.“

Í um­fjöllun Mail On­line kemur fram að þó kaffi hafi sína kosti fylgi því einnig margir kostir að láta af kaffi­drykkju. Vísað er í um­fjöllun heilsu­ritsins Healt­hline sem segir að of mikil kaffi­drykkja geti valdið auknum kvíða­ein­kennum og stuðlað að verri svefni. Að láta af kaffi­drykkju geti stuðlað að betri meltingu, betra jafn­vægi á hormóna­kerfi líkamans, lægri blóð­þrýsting, færri stundum þar sem höfuð­verkir gera vart við sig og að sjálf­sögðu hvítari tönnum.