Hætta við að þétta byggð vegna andstöðu íbúa

Mikill meirihluti er andvígur þéttingu byggðar við Bústaðaveg og hefur því verið fallið frá tillögunni.

Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Í netkönnun sem framkvæmd var af Gallup fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, var meðal annars spurt um hugmyndir um uppbyggingu meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ. Rúmur helmingur svarenda var á móti hugmyndunum, eða 58 prósent.

Fram kemur í bókun meirihlutans í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar eftir kynningu á könnun Gallups í dag segir að ljóst sé að tillögur að þéttingu byggðar meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ hafi mætt mikilli andstöðu meðal íbúa í hverfinu.

„Mikilvægt er að hlusta á þessar raddir íbúa og réttast er að leggja þessar hugmyndir um þéttingu við Bústaðaveg til hliðar og leita annarra lausna sem byggja á breiðari sátt og draga úr umferðarhraða, bæta hljóðvist og tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu eins og kallað hefur verið eftir,“ segir í bókuninni.

Pawel Bartoszek, formaður skipulags- og samgönguráðs, ávarpaði íbúa í Facebook- hópnum 108 RVK: „„Við erum gríðarlega ánægð með þann mikla áhuga og umræðu sem hefur átt sér stað. Ljóst er að hugmyndir um þéttingu við Bústaðaveg mæta talsverðri andstöðu meðal meirihluta og því verða þær því lagðar til hliðar og ekki haldið áfram með þær. Mér þótti rétt að upplýsa þennan hóp um það,“ sagði hann.

Hér má lesa niðurstöður könnunarinnar.