Forsætisnefnd Alþingis ákvað á fundi um miðjan síðasta mánuð að hækka laun þriggja embættismanna sem heyra undir ákvörðnuarvald nefndarinnar. Þetta má sjá á vef Alþingis.
Um er að ræða embætti skrifstofustjóra Alþingis, ríkisendurskoðanda og umboðsmann Alþingis. Hækkunin nemur sömu prósentutölu og hækkun þeirra sem fá greidd laun samkvæmt lögum, eða 3,4%. Hækkun annarra embættismanna á æðstu stigum tók gildi 1. janúar.
Ákveðið var við niðurlagningu kjararáðs að færa ákvörðun um laun forstöðumanna ríkisins frá ráðinu og til skrifstofu kjara-og mannauðs innan fjármálaráðuneytisins. Þar taka nokkur störf sjálfkrafa breytingum í samræmi við breytingu á meðaltali launa ríkisstarfsmanna.
Þar má til dæmis nefna forseta Íslands, þingmenn ráðherra, dómara, saksóknara og ríkissáttasemjara. Þrjú embætti heyra beint undir þingið. Forsætisnefnd ákveður kjör þeirra. Það eru þrjú áðurgreind embætti: skrifstofustjóri þingsins, umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi. Ekki kemur fram á vef Alþingis hver föst kjör þeirra eru nú.