Hægt að gera 1.062 Leynilöggur fyrir einn Bond

Íslenska kvikmyndin Leynilöggan er komin í bíó og hefur fengið góðan meðbyr. Meðal þeirra sem hafa séð hana er Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðarráðherra, sem er mjög ánægð:

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er einnig hrifinn og bendir á áhugaverða staðreynd um Leynilögguna og nýjustu myndina um James Bond sem keppa um athygli í kvikmyndahúsum.

„Við fórum á nýju Bond myndina vikuna áður og þurftum að þrauka í gegnum lopa sem vart var hægt að teygja meira en myndin gerir. Bond myndin kostaði um 314 milljónir bandaríkjadala í framleiðslu og markaðssetning er talin hafa kostað að lágmarki 464 milljónir dollara. Sérfræðingar telja að hún þurfi á endanum að þéna um 900 milljónir dollara til að ná kostnaði eða um 117 milljörðum íslenskra króna,“ segir Ragnar og bætir við:

„Til að setja þetta í samhengi þá gætu aðstandendur Leynilöggu gert 1.062 framhaldsmyndir miðað við framleiðslukostnað. Ég er ekki viss um að ég hefði úthald í svo margar en Leynilögga 1 er hin besta skemmtun og skylduferð í bíó fyrir alla þá sem hafa sakbitna sælu fyrir næntís hasarmyndum af bestu gerð.“