Háa­leitis­braut þrengd og ak­reinar lagðar niður: „Rökin fyrir því að þrengja Háa­­leitis­brautina eru nokkur“

Fækka á ak­reinum á Háa­­leitis­braut ofan Bú­­staða­vegar úr fjórum í tvær og leggja af tvær beygju­ak­reinar. Fram­­kvæmdir vegna þessa hefjast í septem­ber. Um­­­ferð verður tíma­bundið beint um Á­land ofan Borgar­­spítala og Foss­vogs­veg neðan spítalans.

Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

„Rökin fyrir því að þrengja Háa­­leitis­brautina eru nokkur,“ segir í svari frá Reykja­víkur­­borg til Frétta­blaðsins. „Ekki er metin þörf á því að hafa 2+2 ak­reinar á þessum vegi með til­­liti til um­­­ferðar­­magns sem um þennan veg fer,“ segir í svarinu. Ak­vegurinn verður því með einni ak­rein í hvora átt.

„Þar sem loka á fram­hjá­hlaupi í gatna­­mótum við Bú­­staða­veg verður Háa­­leitis­braut einnig þrengd um eina ak­rein til norðurs, að öðru leyti verður á­­fram sami ak­reina­fjöldi og nú í að­­draganda gatna­­mótanna.“

Öryggis­at­riði sé að huga að gangandi og hjólandi veg­far­endum sem þessar að­­gerðir snúist um, ekki verði átt við ak­reina­fjölda á Bú­­staða­vegi.

„Nema að lögð verða niður tvö fram­hjá­hlaup í gatna­­mótunum, líkt og gert var á gatna­­mótum Grens­ás­vegar og Bú­­staða­vegar.“

Beygju­ak­reinarnar – eða fram­hjá­hlaupin – sem hverfa, eru annars vegar frá Háa­­leitis­braut vestur Bú­­staða­veg þegar komið er niður Háa­­leitis­braut og hins vegar frá Háa­­leitis­braut austur Bú­­staða­veg þegar ekið er frá Borgar­­spítalanum.