Gylfi Þór Þorsteinsson sem vakið hefur athygli fyrir skelegga framgöngu sína við stýringu farsóttarhúsa í kófinu hefur verið ráðinn aðgerðarstjóri í sérstöku aðgerðarteymi sem annast mun móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Segir þar að Guðmundur Ingi Guðbrandsson komi til með að skipa í teymið sem mun fara með yfirstjórn aðgerða og vinna að skipulagningu á móttöku flóttafólks frá landinu.
„Í hópnum verða fulltrúar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, forsætisráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Þá verður óskað eftir fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til þátttöku í teyminu og að fulltrúi flóttamannanefndar eigi þar einnig sæti. Stofnanir ráðuneytisins munu taka þátt í starfinu eftir þörfum,“ segir í tilkynningu.
„Verður maður ekki bara að vona að næsta starf verði spennandi líka og þá þarf maður ekki að upplifa neina tómleikatilfinningu,“ sagði Gylfi Þór í samtali við Fréttablaðið um starfslokin.