Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti leikmaður íslenskrar knattspyrnusögu mætti á kvennalandsleik Íslands og Ítalíu á Evrópumótinu í knattspyrnu. Fotbolti.net greindi frá þessu.
Það er í fyrsta skipti í um það bil ár sem Gylfi sést opinberlega, en líkt og alþjóð veit var hann handtekinns síðasta sumar grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
Gylfi er nú laus gegn tryggingu en framvindan í málinu ætti að skýrast á næstu dögum.
Gylfi sati með systur sinni sem er móðir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, landsliðskonu Íslenska landsliðsins sem skoraði mark liðsins í dag.