Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins í fótbolta, verður áfram laus gegn tryggingu. Breska götublaðið The Sun hefur þetta eftir heimildarmönnum hjá lögreglunni á Manchester-svæðinu.
Blaðið nafngreinir þó ekki Gylfa af lagalegum ástæðum. Í fréttinni kemur þó fram að um sé að ræða leikmann sem var handtekinn í júli í fyrra vegna gruns
Mun þetta vera í þriðja sinn sem Gylfi fær slíka framlengingu en nú gildir hún til miðvikudagsins 19. janúar næstkomandi. Átti síðasta framlengingin að renna út á morgun, sunnudag.
Fréttablaðið hefur greint frá því að Gylfi er búsettur í London og hefur verið síðustu mánuði.
Á meðan málið er til rannsóknar er Gylfi í farbanni frá Bretlandseyjum.