Gylfi sagður hafa samþykkt tilboð frá evrópsku stórliði

Gylfi Þór Sigurðsson gæti verið á leið til stórliðsins Galatasaray í Tyrklandi. Frá þessu greina Tyrkenskir fjölmiðlar, en í þeim segir að Gylfi hafi samþykkt samningstilboð félagsins.

Samningur Gylfa við Everton rann út á dögunum. Hann hefur hins vegar ekkert spilað knattspyrnu í meira en ár þar sem mál hans er í rannsókn, en hann er grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.

Gylfi má þó sem stendur ekki ferðast frá Bretlandi vegna lögreglurannsóknar. Nýjar fréttir gætu þó borist af hans málum þann 16. júlí.

Samkvæmt tyrknesku miðlunum mun Gylfi þéna 1,7 milljón punda á tímabili. Það gera rúmar 276 milljónir íslenskra króna.

Galatasaray er sigursælasta lið Tyrklands. Liðið hefur unnið tyrknesku deildina 22 sinnum, og bikarkeppnina átján sinnum. Auk þess er liðið eina tyrkneska liðið sem hefur unnið evræopukeppni, en það vann UEFA-bikarinn og UEFA-ofurbikarinn árið 2000.

Fréttablaðið greindi fyrst frá þessu íslenskra miðla.