Gylfi: Rekstrar­erfið­leikar þar til bólu­efni finnst – Spáir svipuðum sam­drætti og þegar síldin hvarf

Gylfi Zoega, pró­­fessor í hag­­fræði segir í grein nýjustu út­gáfu Vís­bendingar að búast megi við rekstrar­erfið­leikum hjá fyrir­tækjum þar til bólu­efni við kóróna­veirunni finnst. Búast megi við að það dragist fram á næsta ár og alveg fram á sumarið 2021. Þetta gæti haft mikil á­hrif á hag­stjórn hér á landi.

Kjarninn greinir frá þessu. Þar segir enn fremur að sam­­dráttur verði lík­lega á bil­inu fjögur til sjö pró­­sent í ár eða

„svip­aður og árið 1968, eftir að síldin hvarf af Ís­lands­mið­um, og árið 2009 í kjöl­far fjár­­mála­hruns­ins. Þessi tvö ár­töl eru fræg í hag­­sögu Ís­lands.“

Gylfi segir sam­dráttinn nú allt annars eðlis. Einnig vill hann að stjórn­völd birti efna­hags­á­ætlun um hvernig örva á hag­kerfið nú þegar á­kveðið hefur verið að slaka á sam­komu­banni.

Ítar­lega er fjallað um pistil Gylfa á Kjarnanum.