Fé­lags­ráð­gjafi birtir ráð sem allir frá­skildir for­eldrar ættu lesa fyrir jólin

Gyða Hjartar­dóttir, fé­lags­ráð­gjafi og að­junkt við fé­lags­ráð­gjafar­deil HÍ, skrifar mikil­vægan pistil fyrir frá­skilda for­eldra í Frétta­blaðinu í dag en jólin geta oft verið erfiður tími fyrir skilnaðar­börn.

„Að­ventan er hafin og jólin sem við lítum oft á sem tíma barnanna eru fram undan. Jólin eru jafn­framt hjá okkur flestum tími fjöl­skyldunnar, tími gleði og friðar, þess að gefa og þiggja og síðast en ekki síst tími hefðanna. Flest okkar eiga hlýjar minningar af jólunum, minningar af góðum mat, jóla­gjöfum, ljúfri stemningu og sam­veru með þeim sem standa okkur næst. En hvað eru hefðir? Fyrir suma fela hefðirnar í sér að gera aldrei eins, spyrja fyrir hver jól, hvernig eigum við að halda jól þetta árið? Fyrir aðra snúast jólin og hefðir um að gera alltaf eins, borða alltaf það sama og breyta helst engu. Um helmingur ís­lenskra barna hefur gengið í gegn um skilnað eða sam­búðar­slit for­eldra og er að alast upp á tveimur heimilum,“ skrifar Gyða.

„Fyrir þessar fjöl­skyldur og börn getur verið bæði nauð­syn­legt og mikil­vægt að skapa nýjar hefðir. For­eldrar sem skilja þurfa að byggja upp nýtt sam­band sín á milli, fara úr parsam­bandi og yfir í for­eldra­sam­starf og því geta fylgt á­skoranir. Þá er aldrei mikil­vægara að anda ró­lega og vanda sig við að hugsa hlutina upp á nýtt. Gott ráð í því sam­bandi er að hlusta á börnin, setja þeirra þarfir og óskir fram yfir sínar eigin langanir og væntingar þegar við skipu­leggjum há­tíðarnar og hvað við teljum vera góð jól,“ bætir Gyða við.

„Látum há­tíðarnar snúast um barns­lega gleði, frið, sem og hlýja og nota­lega sam­veru. Látum hefðirnar snúast um að vera saman hvort sem það er á nýjan hátt eða eins og alltaf hefur verið. Hvað með að halda að­fanga­dag á Þor­láks­messu, skjóta upp flug­eldum á ný­árs­dag og hvað með að láta hefðirnar snúast um að gera aldrei eins, bara að vera saman? Því það erum við for­eldrarnir sem leggjum línurnar um það hvernig börnin okkar upp­lifa hlutina og með því leggjum við okkar af mörkum um gleði­leg jól fyrir alla,“ skrifar Gyða.

Gyða bætir við að þegar börn for­eldra sem búa ekki saman eru spurð um hvernig þau vilja hafa lífið eftir sam­búðar­slit eða skilnað for­eldra þeirra, segjast þau lang­oftast dreyma um að for­eldrarnir geti talað saman þrátt fyrir að vera ekki saman lengur.

„Að þau geti átt í góðu for­eldra­sam­starfi þrátt fyrir að vera ekki lengur í parsam­bandi. For­eldrar sem eru frá­skilin eða hafa slitið sam­vistum og eru að ala upp börn saman læra fljótt og eru lang­oftast leikin í því að skapa nýtt líf og nýjar jóla­hefðir eftir skilnað eða sam­búðar­slit. Þeir for­eldrar þjálfast í og kunna vel að setja sínar þarfir til hliðar og horfa á hvað er best fyrir börnin en í lífinu mætum við alltaf ein­hverjum á­skorunum sem við þurfum að takast á við,“ bætir Gyða Við.

Inni á staf­ræna vefnum www.sam­vinna­eftir­skilnad.is er að finna fjöl­mörg staf­ræn nám­skeið með að­ferðum og hag­nýtum verk­færum fyrir for­eldra til að fá betra for­eldra­sam­starf, meðal annars um jólin.

„Á vefnum er að finna góð ráð og hag­nýt verk­færi fyrir alla for­eldra, bæði þá sem takast á við á­skoranir og líka þá sem allt gengur vel hjá. Nám­skeiðin Að skapa gott sam­starf, Gerið skýrt sam­komu­lag um um­gengni og Leiðir til að semja um frí með börnunum eru til að mynda frá­bær á þessum tíma og geta gefið for­eldrum nýja sýn á það hvernig best er að takast á við nýjan veru­leika fjöl­skyldunnar. Vefurinn er opinn og að­gengi­legur fyrir alla for­eldra á Ís­landi, inn­leiddur að danskri fyrir­mynd á Ís­landi í sam­vinnu við mennta- og barna­mála­ráðu­neytið,“ skrifar Gyða.

„Leggjum okkur fram um að veita öllum börnum gleði­leg og frið­sæl jól, full af góðum minningum og munum að jólin eru okkar. Með ósk um gleði­lega að­ventu og jól fyrir öll börn, lítil og stór, í öllum fjöl­skyldu­formum,“ skrifar Gyða að lokum.