Stórleikarinn Will Smith löðrungaði grínistann Chris Rock á Óskarsverðlaunahátíðinni í gær eftir hann sagði brandara um Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will Smith.
Brandarinn snerist um hárgreiðslu leikkonunnar, sem er snoðuð. Chris var að afhenda verðlaunin fyrir bestu heimildarmyndina þegar atvikið átti sér stað.
„Jada, ég elska þig, G.I. Jane 2 ég get ekki beðið eftir því að sjá hana,“ sagði Chris og gerði grín að hárgreiðslunni hennar. *
„Við tölum í fræðunum um skaðlega karlmennsku, þá er það karlmennskuhugmyndir þar sem að það eru bæði skaðlega körlum sjálfum sem og samfélaginu í heild,“ segir Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði um atvikið í samtali viðFréttablaðið.
„Og það sem ég horfði á og það sem að mér fannst sérstakt í þessu var þessi hugmynd að karlinn sé að halda uppi vörnum fyrir konuna,“ segir hún og heldur áfram: „Hún hefur gefið til kynna með svipbrigðum að hún sé ekki ánægð með það sem að Chris Rock lætur út úr sér. Síðan er athyglisvert hvernig Will Smith bregst við fyrir hennar hönd, án þess að bera það neitt undir hana.“
Þá segir hún að þetta atvik passi við úreltar hugmyndir um sambönd „Þetta rímar soldið við þessar hugmyndir að það sé hlutverk karla að halda uppi heiðri konunnar. Hún sé þá einhverskonar eign hans, samanber eiginkona og allt það. Ég myndi segja að það sé hluti af þessum úreltu hugmyndum.
Er það ástin sem gerir hann reiðan?
„Ég veit ekki með það, en skilaboðin í þessu eru að hún sé ekki fær um að svara fyrir sig sjálf. Og það er það sem er í mínum huga svona hluti af þessum skaðlegu hugmyndum um karlmennsku,“ segir Gyða. Hún segir að þetta samsvari þeirri hugmynd að karlinn sé ráðandi aðilinn í sambandi og að konan hafi ekki sömu stöðu.
„Samfélagið er alveg gegnsýrt af þessum hugmyndum, þá verður þetta hluti af hugmyndum kvenna um eigin stöðu, að þær í rauninni geti ekki einar og sér sett þessi mörk og auðvitað er það rétt síðan líka að það er ekki á þær hlustað,“ segir Gyða.
„Það viðheldur þessum hugmyndum um að það sé hlutverk Will að vernda Jadeu útaf hún er ekki fær um það sjálf. Það er allavegana það sem birtist mér.“