Gústaf Níelsson, sagnfræðingur og fyrrverandi útvarpsmaður, hefur kallað eftir því að Gísli Marteinn Baldursson biðji hann afsökunar. Gústaf kallar eftir þessu í færslu á Facebook-síðu sinni sem hann birti í gærkvöldi.
„Komdu sæll Gísli Marteinn. Eftir ábendingu horfði ég á hluta sjónvarpsþáttar þíns á RUV, Vikulokin, frá síðasta föstudegi. Þar bar á góma samskipti innviðaráðherra, Sigurðar Inga og framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, þar sem borinn var á hann rasismi, vegna orðaskipta þeirra. Af einhverjum ástæðum tókst þér að blanda mér inn í þá umræðu, að ósekju,“ segir Gústaf og er augljóslega ekki sáttur.
Hann segir að Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi fréttamaður og núverandi þingmaður Viðreisnar, hafi borið á hann í Kastljósi árið 2015 að hann væri kunnur af rasískum viðhorfum.
„Engin dæmi nefndi fréttamaðurinn þá fullyrðingu sinni til stuðnings og þú ekki heldur í þætti þínum. Mín vegna má RUV pönkast á mér, sé það talið hafa eitthvert skemmtanagildi, en mér er ekki skemmt. Ég er ekki opinber persóna á nokkurn mælikvarða, þótt ég taki þátt í þjóðmálaumræðunni á netmiðlum, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Ég er bara venjulegur eftirlaunamaður, sem annast mikið veika konu sína allan sólarhringinn, alla daga vikunnar,“ segir Gústaf sem vill afsökunarbeiðni, bæði frá Gísla Marteini og helst Sigmari líka.
„Mér finnst að þið Sigmar ættuð að biðja mig afsökunar á órökstuddum fullyrðingum ykkar, eða þá þora að taka umræðuna um hinn meinta rasisma minn. Ég get vel tekið sverð mitt úr slíðri og brugðið fyrir mig skildi. Háttsemi ykkar, sem RUV ber auðvitað ábyrgð á, er ekkert annað en einelti og óþokkaskapur.“