Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý eins og hún er alltaf kölluð, er einn vinsælasti einkaþjálfari landsins. Gurrý heldur úti Facebook-síðu þar sem hún birtir ýmsa gagnlega heilsumola fyrir fylgjendur sína.
Færsla sem hún skrifaði í gær hefur vakið talsverða athygli, en þar segist hún sakna þess að sjá einhvern tala um heilsu án þess að hræða líftóruna úr fólki með COVID-19.
„Ætlar engin að taka slaginn með heilsu fólks og hvað við getum gert sjálf? Eða er öllum drullusama? Það eru stofnanir á Íslandi sem bera ábyrgð á að sinna lýðheilsu landsmanna og ég hef ekki séð neinn þar stíga upp og hvetja landsmenn áfram til góðra verka í garð eigin heilsu á þessum covid tímum. Það dugar ekki að vera stöðugt að búa til ótta og kvíða við þurfum líka hvatningu og fræðslu og sérstaklega núna.“
Gurrý, sem varð landsfræg þegar hún tók að sér þjálfun í þáttunum Biggest Loser, segist sjálf ætla að girða sig í brók. Lofar hún því að setja meiri kraft en áður í að kenna það sem hún kann og hvetja fólk áfram.
„Þú munt heyra frá mér á næstu vikum og mánuðum af meiri krafti en áður. Hvet alla aðra þjálfara til að gera slíkt hið sama,“ segir hún.