„Hvort sem vandinn er göngugötur eða bílagötur er augljóst að miðbær Reykjavíkur er í alvarlegum vanda sem kórónafaraldurinn hefur síðan magnað,“ segir Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og einn af stofnendum Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári gerir málefni miðborgarinnar að umtalsefni á Facebook og af lestri færslunnar má skilja að honum lítist ekki beinlínis á blikuna. Gunnar er sjálfur nýfluttur aftur í miðbæinn eftir nokkurt hlé.
Þó kórónuveirufaraldurinn hafi haft margvísleg áhrif hafði fækkun ferðamanna í kjölfar þrots WOW haft áhrif, mörg veitingahús og margar verslanir verið í vanda. Þá hafi gengið erfiðlega að leigja eða selja húsnæði undir verslanir og veitingahús og sömu sögu sé að segja af íbúðum á efri hæðum. Þá hafi Bíó Paradís tilkynnt um lokun fyrir faraldurinn.
„Einhverra hluta vegna er meirihlutinn í Reykjavík blindur á þetta ástand, fer strax ofan í skotgrafir göngugatna og hjólastíga þegar rætt er um ástandið, eins og Miðflokkurinn/Sjálfstæðisflokkurinn séu andstæðingarnir; ekki að bregðast þurfi við svo miðbærinn missi ekki flugið á erfiðum tíma.“
Gunnar Smári segir að á þeim stutta tíma sem liðinn er síðan hann flutti í miðbæinn hafi BíóParadís lokað og nú Mál&Menning, en tilkynnt var um lokun verslunarinnar í gær.
„Ef ég hefði skrifað lista yfir kostina við hverfið um það leyti sem ég flutti hingað hefðu þessi tvo lent á topp tíu, líklega topp fimm ásamt Sandholt, Brynju og Kaffifélaginu.“