Gunnar sorgmæddur: „Það er einungis ein leið til að leysa þetta mál“

Gunnar Kvaran, sellóleikari og prófessor við Listaháskóla Íslands, segir að aðeins ein leið sé fær til að leysa mál legsteinahúss listamannsins Páls Guðmundssonar frá Húsafelli. Hún er sú að legsteinahúsið fái að standa og Borgarbyggð taki fulla ábyrgð á sínum mistökum.

Gunnar skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann viðrar þessa skoðun sína. Áætlað er að hefja niðurrif á húsinu í dag en það var reist árið 2016.

„Þegar þessar línur eru skrifaðar eru menn að undirbúa að rífa hið fagra legsteinahús Páls Guðmundssonar, listamanns frá Húsafelli. Sú aðför sem hefur verið viðhöfð gagnvart honum og hans list er með ólíkindum,“ segir Gunnar í grein sinni.

Hann segir að sveitarstjórn Borgarbyggðar hafi haft drjúgan tíma til að miðla málum milli deiluaðila. Ekkert hafi gerst þó að frumorsök í málinu megi rekja beint til klaufalegra mistaka þeirra sem sáu um auglýsingaferli deiliskipulags staðarins.

„Páll lætur byggja legsteinasafnið í góðri trú eftir að hafa fengið til þess byggingarleyfi. Að það reynist ekki gilt þegar til kemur, er ekki honum að kenna. Nú reynir Borgarbyggð að firra sig allri ábyrgð og telur að Páll hefði átt að sannreyna lögmæti byggingarleyfis fyrir safnið. Borgarbyggð er ekki stætt á því að veita leyfið og draga það svo til baka í miðju byggingarferli.“

Gunnar segir það óskiljanlegt að málið hafi ratað inn í dómskerfið á þessum vafasömu forsendum.

„Einn af fremstu lögspekingum þessa lands telur ekki að þessi dómur standist skoðun. Frá mínum sjónarhóli virðist sem Sæmundur Ásgeirsson sækjandi málsins og eigandi Gamla Bæjar, hafi sýnt ótrúlega harðneskju og miskunnarleysi í þessu máli. Það er einungis ein leið til að leysa þetta mál, að legsteinahúsið fái að standa og Borgarbyggð taki fulla ábyrgð á sínum mistökum.“

Gunnar endar grein sína á þeim orðum að Páll sé listrænt höfuðdjásn Borgarbyggðar og einn af fremstu myndlistarmönnum landsins. Hvetur hann fólk til að styðja Pál í málinu og mótmæla.