„Við leysum ekki vanda 1/3 landsmanna nema með því að ráðast í þjóðarátak til að drepa húsnæðiskreppuna,“ segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, í pistli sem birtist á Vísi í morgun.
Gunnari Smára hefur í gegnum tíðina verið tíðrætt um húsnæðismarkaðinn en yfirskrift greinar hans er stutt og skorinort: Húsnæðismarkaðurinn er heimasmíðað helvíti.
Í langri grein sinni segir hann að íslensk stjórnvöld líti á húsnæði sem byggingariðnað og fasteignaviðskipti fyrst og fremst en síður sem lífsnauðsyn fyrir íbúana.
„Það skiptir engu hversu mikið þú hleður upp af velferðarprógrömmum, hversu mikið þú styður við þau sem eru tekjulág og hjálparþurfi; ef húsnæðismarkaðurinn er í steik verður allt í steik,“ segir hann og bætir við að stefna yfirvalda virðist vera að viðhalda húsnæðisvanda hinna lakar settu langt inn í framtíðina.
Hann nefnir að Reykjavíkurborg sem dæmi væri nær að líta til Vínarborgar þar sem rúmlega helmingur alls húsnæðis er ódýrt og öruggt og auk þess varið fyrir öfgafullum sveiflum húsnæðis- og fjármálamarkaðar.
„Ef við settum okkur slík markmið þá vantar nú þegar 20 þúsund slíkar íbúðir í Reykjavík, sem gerir markmið meirihlutans um 250-300 nýjar íbúðir á ári grátlega lágt.“
Gunnar Smári nefnir svo þá leið sem Svíar fóru fyrir um 50 árum.
„Markmiðið var að losa þjóðina úr helgreipum húsnæðiskreppu. Og þið getið spurt eldri Svía sem lifðu þennan tíma um áhrifin. Það var eins og skyndilega kæmi logn eftir óveður, var lýsing eins þeirra. Samfélag sem losnar úr viðjum nagandi húsnæðiskreppu blómstrar.“
Gunnar Smári nefnir að byggðar hafi verið milljón íbúðir í Svíþjóð á tíu árum, en miðað við mannfjölda í Svíþjóð á þeim árum og á Íslandi í dag jafngildi þetta um 45 þúsund íbúðum á Íslandi í dag.
„45 þúsund óhagnaðardrifnar íbúðir ofan á núverandi markað myndi færa þann hlut markaðarins úr 8,4% af heildinni í 30%. Þótt átakið sé stórt nær það ekki að koma hlutfalli þessarar tegundar húsnæðis undir það sem telja má lágmark. Það segir okkur hversu vondur húsnæðismarkaðurinn á Íslandi er og hversu illa hann þjónar almenningi.“
Grein Gunnars Smára má lesa í heild sinni hér.