Gunnar Smári útskýrir hvers vegna hann nýtti ekki ferðagjöf stjórnvalda

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, er í hópi þeirra rúmlega 30 þúsund Íslendinga sem nýttu ekki ferðagjöf íslenskra stjórnvalda.

Í frétt Morgunblaðsins í dag er greint frá því að tæplega 216 þúsund Íslendingar hafi nýtt gjöfina sem rennur út á morgun. Þó nokkrir nýttu gjöfina ekki og er Gunnar Smári í þeim hópi. Í færslu á Facebook-síðu sinni útskýrir hann hvers vegna.

„Meðan ríkisstjórnin sinnir engu því fólki sem á ekki fyrir mat fæ ég ég mig ekki til þess að þiggja þessa gjöf. Sem auðvitað er ekki gjöf til mín heldur eigenda veitingastaða, sem ráðherrarnir finna til með þótt þeim sé skítsama um raunveruleg fórnarlömb kórónasamdráttarins, fátæks launafólks á leigumarkaði sem missti vinnuna. Það fólk getur ekki nýtt þess gjöf og er meðal þessa hóps sem ekki þáði gjöfina, vegna þess að til að sækja gjöfina þarftu að eiga efni á að ferðast,“ segir hann.

Gunnar Smári segist raunar ekki heldur hafa sótt um skuldaniðurfærslu í tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar. Það hafi verið annað dæmi um hvar samkennd ráðherra liggur.

„Þá var fólki bætt gamalt fall í eigin fé húsnæðis en fórnarlömb húsnæðiskreppunnar, fólkið sem missti húsin sín og þau sem hröktust um að stjórnlausum okurmarkaði leigufélaganna fengu engar bætur.“

Gunnar Smári segir að vissulega vigti það ekki þungt að taka ekki þátt í svona „siðlausum gjörðum ráðherranna“ eins og hann orðar það. Þeir reyni að afla sér vinsælda með því að spreða fé almennings á sama tíma en geta að sama skapi ekki falið andstyggð sína og fordóma gagnvart bjargarlausu og fátæku fólki.

„Maður breytir ekki heiminum með því (ég reyni samt hér að gera það pínulítið með því að segja frá) og ég tel að þau sem þáðu þessar gjafir hafi ekki brotið neitt af sér.

Fyrir utan stjórnmálafólkið á ofurlaununum sem stökk í biðröðina eftir niðurfellingunni. Ég er á því að það hafi verið siðlaust.“