Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, fagnar því að í dag eru liðin 25 ár síðan hann hætti að drekka áfengi.
„Um tíuleytið á þessum degi fyrir tuttugu og fimm árum fór ég á Vog og fékk aðstoð starfsfólks og annarra sjúklinga til að taka þá ákvörðun að hætta að drekka,“ segir Gunnar Smári á Facebook-síðu sinni.
„Ég vissi svo sem áður að áfengi og önnur vímuefni færu mér illa og gerðu mér vont, en stundum er það svo að við gerum það sem við ættum ekki að gera og kannski síst það sem við ættum helst að gera. Til að komast út úr þeirri stöðu þurfti ég hjálp og síðan hef ég leitað í félagsskap fólks til endurnýja þessa ákvörðun. Með þeim árangri að ég hef ekki drukkið eða neytt vímuefna í þennan tíma.“
Gunnar Smári segir að þessi tími, aldarfjórðungur, hafi verið honum góður og blessunarríkur.
„Lífið er gott og fólk er fagurt. En samfélagið okkar gæti auðvitað verið svo miklu betra; mildara, kærleiksríkara og réttlátara. Kannski ættum við safnast saman og heita hvort öðru að breyta því. Við erum félagsverur og hópdýr; tökum okkar bestu ákvarðanir í hópi, þær sem endast, frjóvgast og blómstra.“