Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi og fyrrverandi ritstjóri, segir sérstakt að horfa upp á miklar mannabreytingar meðal þingflokks Pírata. Þetta má sjá á Facebook hópi Sósíalistaflokks Íslands.
Tilefnið er tilkynning Jóns Þórs Ólafssonar, þingmanns Pírata, sem út kom í dag, um að þingmaðurinn hyggist ekki gefa kost á sér á ný. „Þá er einmitt enn betra að ég stigi til hliðar. Það sem hefur virkað best hjá mér er að koma verkefnum af stað og gera þau sjálfbær. Ef mér finnst þau nægilega merkileg og spennandi er ég í fjórða og fimmta gír. En þegar þau eru orðin sjálfbær dett ég niður um gír,“ segir Jón Þór, sem segist vilja halda sig í grasrótinni.
Í Facebook færslu sinni bendir Gunnar Smári á að Jón Þór sé ekki sá eini í þingflokki Pírata sem ekki ætli sér fram í aðdraganda Alþingiskosninga sem boðaðar hafa verið næsta haust.
„Nú er staðan á þingflokki Pírata sú að þrír af sex þingmönnum hafa lýst yfir að þeir ætli ekki að bjóða sig fram aftur (Jón, Smári & Helgi), tvær þingkonur eru í fæðingarorlofi til vors (Halldóra & Sunna) og svo er Björn Leví. Ég hef enga skoðun á hvort þetta er gott eða vont, en þetta er sérstakt og ekki mörg dæmi um þetta í þingsögunni í aðdraganda kosninga.“