Flest bendir til þess að restin af Íslandsbanka verði seld á næsta ári ef marka má fjárlagafrumvarpið sem lagt var fram í morgun.
Ríkið á enn 42,5 prósenta hlut í bankanum og er áætlað að sala á hlutnum skili ríkissjóði tæpum 76 milljörðum króna. Kjarninn fjallaði um þennan anga fjárlagafrumvarpsins á vef sínum í morgun og gerði Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og fyrrverandi fjölmiðlamaður, málið að umtalsefni í Facebook-hópi Sósíalista.
„Þarna er sagt, ekki svo mikið undir rós: Mér er svo hjartanlega sama um hvað ykkur finnst, þið valdalausu vesalingar, ég mun fara mínu fram og selja vinum Íslandsbanka. Það skiptir mig engu þótt 91% af þjóðinni vilji ekki selja, þó það væru 130% myndi ég selja. Vegna þess að ég get það og Katrín leyfir mér það,“ segir hann.
Sala á hlut bankans sem fram fór fyrr á þessu ári var umdeild vegna þess hvernig staðið var að útboðinu, en faðir Bjarna var einn þeirra sem keypti í bankanum. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um söluna er á lokametrunum og mun væntanlega líta dagsins ljós á næstu dögum.