Gunnar Smári um Ás­geir: „Hvílíkur sokkur“

Gunnar Smári Egils­son, Sósíal­ista­foringi, er ekki par sáttur við um­mæli Ás­geirs Jóns­sonar, seðla­banka­stjóra sem hann lét falla í Við­skipta­Mogganum í morgun.

Ás­geir segir að muni komandi kjara­samningar reynast ó­raun­hæfir að hans mati og kynda undir verð­bólgu þá muni Seðla­bankinn bregðast við því. Það sé hans lög­boðna skylda, að tryggja virði gjald­miðilsins og það þýði miklar vaxta­hækkanir.

Gunnar Smári bregst við þessum orðum á Face­book hópi Sósíal­ista.

„Lesist: Mitt hlut­verk er að við­halda auð hinna ríku og ég mun gera allt sem þarf til þess. Ef þið haldið ykkur ekki á mottunni á meðan, þið auma launa­fólk og annars flokks borgarar, mun ég hækka vexti til að verja auð hinna ríku og grafa með því undan lífs­kjörum ykkar, sprengja upp hús­næðis­kostnaðinn svo þið munið ekki eiga fyrir mat fyrir börnin ykkar.
Pakkið sem þið eruð; reynið að átta ykkur á hvar þið búið. Þið búið í ver­stöð Sam­herja þar sem hin fáu og ríku ráða öllu og þið engu.“

Þá bætir Gunnar Smári við:

„Þessi maður gerir engar at­huga­semdir við met­hagnað banka og stór­fyrir­tækja, engar at­huga­semdir við stjórn­laust okur hinna ríku, níðings­verk þeirra gegn sam­fé­laginu. En hann öskrar úr sér augun þegar hann hugsar til þess að skúringa­konan sem þrífur skrif­stofuna hans vilji fá að eiga fyrir mat út mánuðinn. Hvílíkur sokkur.“