Gunnar Smári svart­sýnn: Dag­blöðin jörðuð í kyrr­þey – „Enginn mun sakna þeirra“

Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins og fjöl­miðla­maður til ára­tuga, segir aug­ljóst að dag­blöðin séu að deyja. „Þau munu liggja á líknar­deild meðan ein­hver er til í að borga undir þau, en svo verða blöðin jörðuð í kyrr­þey. Og enginn mun sakna þeirra,“ segir hann í færslu á Face­book.

Gunnar Smári deilir þar saman­tekt Þórðar Snæs Júlíus­sonar, rit­stjóra Kjarnans, á lestri dag­blaða á undan­förnum árum. Í saman­tektinni kemur fram að lesturinn hafi dregist mjög saman á undan­förnum árum og virðist það eiga við um alla stærstu prent­miðla landsins: Morgun­blaðið, Frétta­blaðið, Við­skipta­blaðið og DV og þá virðist Mann­líf vera hætt að koma út.

Gunnar Smári þegar ís­lenskan dag­blaða­markað betur en margir enda var hann einn af stofn­endum Frétta­blaðsins. Þá var hann einnig einn af stofn­endum Ny­hedsa­visen í Dan­mörku sem stofnað var að fyrir­mynd Frétta­blaðsins. Gunnar Smári rit­stýrði svo Frétta­tímanum en út­gáfu­fé­lag miðilsins varð gjald­þrota árið 2017.

„Frí­blöðin voru tíma­bundið við­bragð gagn­vart veikari stöðu dag­blaða á aug­lýsinga­markaði, þau gátu frestað hruni dag­blaðanna en ekki komið í veg fyrir það,“ segir Gunnar Smári sem segir að á Frétta­tímanum hafi verið reynt að halda úti blaði á bestu aug­lýsinga­dögunum: Fimmtu­degi, föstu­degi og laugar­degi.

„En þrátt fyrir góðan lestur skorti okkur fé til að ná í höfn. Reynslan af út­gáfu Frétta­tímanum árin á undan hafði sýnt að út­gáfa einn dag í viku bar sig ekki heldur, aug­lýsingar á einum degi stóðu ekki undir föstum kostnaði og margt í starfinu nýttist of illa. Frétta­blaðið er komið niður í fimm daga, og er örugg­lega enn rekið með góðu tapi þriðju­daga og mið­viku­daga,“ segir Gunnar Smári meðal annars og bendir á að Morgun­blaðið hafi verið rekið með miklu tapi síðan Frétta­blaðið komst yfir Morgun­blaðið í lestri árin 2003 til 2004.

„Fyrir röð til­viljana varð blaða­mennskan lífs­starf mitt og ást­ríða. Lengi vel fannst mér fátt til­komu­meira en prent­vél að snúa sér í gang til að prenta vel gert blað, fullt af lífi, fróð­leik, fréttum og skemmti­leg­heitum. Mér fannst lykt af prent­svertu góð,“ segir Gunnar Smári sem segist hafa vanið sig af dag­blaða­lestri.

„Ég hef skrifað í blöð og rit­stýrt þeim, hannað þau og brotið um, selt aug­lýsingar í þau og borið þau út, gert allt sem tengist dag­blaða­út­gáfu með gleði og á­huga. Samt er það svo ég hef ekki fengið blöðin á heimilið síðan við fluttum heim frá Frakk­landi fyrir mörgum árum. Það að detta út í eitt ár var nóg, ég vandi mig af dag­blaða­lestri, hætti að horfa á hvert blað sem eins­konar dóm­kirkju, og les nú fréttir og fróð­leik í stykkja­vís á vefnum. Fyrir­brigðið dag­blað er ekki til fyrir mér,“ segir Gunnar Smári sem segir þó aug­ljóst að ekki sé hægt að draga of miklar á­lyktanir af einum manni.

„En það er samt aug­ljóst að blöðin eru að deyja, þau munu liggja á líknar­deild meðan ein­hver er til í að borga undir þau, en svo verða blöðin jörðuð í kyrr­þey. Og enginn mun sakna þeirra.“

Fríblöðin voru tímabundið viðbragð gagnvart veikari stöðu dagblaða á auglýsingamarkaði, þau gátu frestað hruni...

Posted by Gunnar Smári Egilsson on Mánudagur, 14. september 2020